Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans góðu ræðu. Mér fannst gott að heyra, eins og hv. þm. Víðir Reynisson kom hér inn á, að það sé gott að skipta um skoðun og það sýnir bara hraustleikamerki og stærra fólk. Það væri gott ef hann myndi hnippa í hv. formann atvinnuveganefndar, Sigurjón Þórðarson, og benda honum á það. Það er ágætt að skipta um skoðun þegar menn eru komnir út í skurð. En að máli málanna sem hér er um að ræða.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Nú fannst manni í þessari umræðu — nú sat ég ekki á þingi þegar þetta kom fram fyrst og er þetta náttúrlega mitt fyrsta þing. Þegar dómur Hæstaréttar kemur, breyttist þá umræðan? Hafði það áhrif á almenna umræðu og almenna afstöðu þingmanna? Gaf það einhverja ákveðna línu í því hvert málið þróaðist í framhaldinu?