156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:49]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég fór einmitt yfir það í máli mínu við 1. umræðu, í mínum huga gjörbreyttist málið þá. Á kjörtímabilinu 2017–2021 vorum við í raun og veru að reyna að vígbúast og halda því fram að úr því að þetta hafi verið svona og gengið vel í 15 ár þá væri engin ástæða til að breyta. Því meira sem við unnum í því og fengum fleiri sérfræðinga þá sáum við að sú leið væri torfær en það var allt í lagi að taka hana. En þegar Hæstiréttur var búinn að dæma og eiginlega að benda þinginu á að við þyrftum að laga þetta þá fannst mér engin önnur leið fær en að fara í það verkefni. Þá finnst mér standa upp úr núna hvort við viljum gera það sjálf, eins og í þessu frumvarpi sem mér finnst vera skynsamlega leiðin, eða hvort við viljum taka þennan slag við dómstólinn upp á von og óvissu og við vitum það ekkert. Svo vil ég segja að það er oft skynsamlegra að skipta um skoðun áður en maður er kominn út í skurð, maður getur forðast það að lenda í skurðum.