Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans svar. Mig langar að halda aðeins áfram með þetta af því að ég sá í einhverri umfjöllun um þetta mál, bókun 35, þar sem vitnað er í fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins þar sem hann segir að mögulega sé engin ástæða fyrir Ísland að vera að taka upp bókun 35 í ljósi þess að framkvæmd EES-samnings hafi gengið vel og í ljósi þess að Norðmenn hafi oft verið til meiri trafala í framkvæmd EES-samningsins en Íslendingar. Þá velti ég fyrir mér og mig langaði að spyrja hv. þingmann og fara aðeins dýpra í það: Hverju breytir það fyrir okkur að í staðinn fyrir að við ákveðum þetta hér, og í ljósi þess að málið hefur ekki verið kynnt nógu vel fyrir þjóðinni eins og fram hefur komið og þetta er mjög lagatæknilegt og flókið mál, meira að segja fyrir okkur þingmenn. [Hlátur í þingsal.] Hverju myndi það breyta ef við myndum láta vísa þessu til EFTA-dómstólsins?