156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:51]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Kannski engu, annað en það að mér finnst ólíklegt annað en að EFTA-dómstóllinn sé á sömu skoðun og Eftirlitsstofnun ESA, að þetta hafi ekki verið rétt innleitt, þannig að það séu líkindi til þess að við verðum dæmd til að gera eitthvað. Verðum við dæmd til að fara einhverja enn skemmri leið heldur en þessa sem okkar helstu sérfræðingar hafa samið? Það er hugsanlegt, ég ætla ekki útiloka það. En það er líka möguleiki að niðurstaða dómstólsins verði með erfiðari hætti; það verði sem sagt meira íþyngjandi breyting sem við þurfum að gera til að innleiða, að þeirra mati, bókun 35 rétt. Þess vegna finnst mér betra að hafa frumkvæði. Þess vegna finnst mér betra að við setjum lögin. Mér finnst það vera illskásta leiðin og myndi held ég gera það að verkum — af því að eins og kemur líka fram í álitsgerðum (Forseti hringir.) þá gætum við fellt hana úr gildi seinna meir ef það reynist rangt hjá okkur og sett aðra. Af því að það erum við sem höfum þetta vald. Það finnst mér vera megininntakið.