156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

eEvrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[21:53]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég veit að hann er ekki löglærður og þetta er mjög lögfræðilega þungt mál og krefjandi fyrir alla, fyrir okkur sem erum að reyna að skilja það hér. Og það er ekkert að því. En mig langaði samt aðeins að tala um lögin en kannski út frá öðrum vinkli. Hér er verið að gera erlendar reglur rétthærri íslenskum lögum, gott og vel, nema Alþingi ákveði annað, sem er mikilvægt að halda til haga. Þá eru það auðvitað reglur sem eru tengdar EES-samningnum sem eiga þá uppruna sinn í ESB. Ég er að nefna þetta því að það er auðvitað áhugavert að íslensk lög eru í grunninn erlendar reglur, hegningarlögin eru í rauninni dönsk og áfram gætum við talið, og það virðist ekki trufla íslenska þjóð mikið. Mig langaði að spyrja hv. þingmann: Heldur hann að hræðsla við ESB sé mögulega að vekja upp þessar tilfinningar í þessu máli, vegna uppruna reglnanna?