Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Takk fyrir þetta andsvar, hv. þm. Hildur Sverrisdóttir. Ég held að þetta sé algerlega rétt hjá þingmanninum. Þetta er það sem við höfum verið að benda á. Núverandi ríkisstjórn fór í kosningar og fjallaði ekki um að það stæði til að fara að tala við Evrópusambandið. Svo var mynduð ríkisstjórn og þá er það allt í einu komið á dagskrá að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um málið innan tveggja ára. Á sama tíma er bókun 35 sett í fyrsta forgang hjá ríkisstjórn. Eðlilega vekur það upp tilfinningar, að það sé verið að setja einhvern óeðlilegan þrýsting og að þess þurfi. Mér fannst þetta vera óheppilegt, bæði að setja þetta mál í fyrsta forgang, sem fyrsta mál ríkisstjórnarinnar, og hvað þá að fara að kljúfa þjóðina með því að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu.