Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Já, það er mín skoðun að það sé betra að við hér á hinu háa Alþingi tökum málið í okkar hendur. Ég lít ekki svo á, eins og ég heyrði fyrr í kvöld, aðallega frá hv. þingmönnum Miðflokksins, að þetta sé hræðsluáróður, að það sé verið að hræða okkur til að gera þetta. Ég lít ekki svo á. Ég lít svo á, eftir að við höfum verið að skoða þetta, og margir af færustu sérfræðingum þjóðarinnar í stjórnskipunarrétti og þjóðréttarlegum skuldbindingum hafa farið yfir málið og sagt að þetta sé skynsamlega leiðin, að þá sé erfitt að fara gegn því og ég hef ekki séð betri leið. Ég ætla hins vegar ekkert að útiloka að hin leiðin sé ekki fær, að fara fyrir dómstóla. Það er alltaf að lokum svona últímaleiðin. Ef engin niðurstaða kemur þá endar ágreiningurinn bara hjá dómstólum. En þú veist aldrei hvernig sú niðurstaða verður. Við vitum þó núna hvaða niðurstöðu við fáum með því að leggja þetta mál fram sjálf, sjálfstætt Alþingi með fullt fullveldi, við sýnum það einfaldlega í þessu máli.