Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Umræðan sem hér fer fram um bókun 35 við EES-samninginn er mikilvæg og ég vona að hún verði upplýsandi. Hún varpar ljósi á mikilvægar spurningar um réttarríkið, traust á stjórnskipan okkar og ekki síst ábyrgð Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Um leið og við ræðum þetta mál verðum við að horfa til þeirra skuldbindinga sem við höfum tekið okkur á hendur og þeirra ávinninga sem við höfum haft af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Það er ljóst að EES-samningurinn hefur verið hornsteinn í utanríkis- og efnahagsstefnu okkar Íslendinga síðustu þrjá áratugina.
Virðulegi forseti. Við skulum rifja það upp að EES-samningurinn var samþykktur með yfirgnæfandi meiri hluta hér á Alþingi árið 1993. Þar með ákvað íslenska þjóðin að ganga til samstarfs sem byggir á sameiginlegum markaði, samkeppnisreglum og jafnrétti aðila. Slíkt samstarf krefst jafnræðis í réttarframkvæmd. Það felur í sér að reglur þurfa að gilda með sambærilegum hætti í öllum aðildarríkjum. Ef svo er ekki brestur grundvöllurinn sem allt byggist á, traustið í samstarfinu hverfur. Með bókun 35 erum við ekki að bæta nýjum reglum inn í íslenskan rétt heldur er verið að skýra hvernig þær reglur sem við höfum sjálf samþykkt eiga að virka í samræmi við skuldbindingar okkar. Þetta er ekki breyting á stefnu, þetta er styrking á framkvæmd.
Bókun 35 fjallar um túlkunarlegt atriði, hvernig íslensk lög sem eiga rætur að rekja til EES-samningsins eiga að hljóta meðferð innan íslensks réttar. Hún tryggir að þegar árekstur verður á milli slíkra laga og annarra landslaga þá gildi þau lög sem byggjast á EES-skuldbindingunum nema Alþingi ákveði annað. Ég endurtek: Nema Alþingi ákveði annað. Þetta tryggir réttaröryggi og samræmi og gerir dómstólum kleift að taka réttar og skýrar ákvarðanir þegar upp koma álitaefni.
Nýlega kvað Hæstiréttur upp dóm þar sem fram kom að 3. gr. laga um EES sé ekki í samræmi við EES-samninginn. Við getum ekki látið það sem vind um eyru þjóta. Ef við viljum vera hluti af EES-samningnum verðum við að uppfylla skyldur okkar gagnvart honum og skyldur okkar þar með gagnvart öðrum aðildarríkjum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þessu.
Það er mikilvægt að árétta að þetta frumvarp felur ekki í sér neitt framsal á löggjafarvaldi. Öll lög sem byggjast á EES-gerðum eru sett af Alþingi. Það er engin breyting á þeirri meginreglu. Þau eru öll íslensk lög þrátt fyrir að þau séu gerð að erlendri fyrirmynd. Hálft lagasafnið okkar er fengið úr skandinavískri löggjöf; samningalögin, lög um einkahlutafélög, lög um stéttarfélög og lög um vinnudeilur. Eru þetta ekki íslensk lög? Auðvitað eru þau það rétt eins og þau lög sem eiga rætur að rekja til EES-reglna. Lög sem hafa verið samþykkt á Alþingi eru íslensk lög.
Frumvarpið felur ekki í sér að ESB-reglur taki sjálfkrafa gildi hér á landi, þvert á móti. Þetta er spurning um skýra lagatúlkun innan íslensks réttar og staðfestingu á þeirri framkvæmd sem raunin hefur verið. Þetta hefur verið framkvæmdin um langt árabil en með frumvarpinu er framkvæmdin færð í fastari, skýrari og fyrirsjáanlegri skorður.
Við höfum áður mætt gagnrýni frá ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, um framkvæmd bókunar 35. Þessi gagnrýni hefur staðið yfir í yfir áratug. Fyrstu athugasemdir komu fram árið 2012. Síðan þá hefur ESA sent rökstudda áminningu þar sem bent er á að íslensk löggjöf veiti ekki nægilega tryggingu fyrir því að reglur EES njóti forgangs þegar árekstur verður milli laga. Hópur lögfræðinga komst árið 2018 að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að gera lagabreytingar. Ef ekkert er gert mun næsta skref líklega verða málshöfðun gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Slík málshöfðun gæti leitt til dóms sem myndi ekki aðeins staðfesta brot Íslands heldur einnig kalla á enn umfangsmeiri lagabreytingar en frumvarpið sem nú liggur fyrir gerir ráð fyrir. Við þurfum að hafa það hugfast að slíkt dómsmál gæti leitt til fordæmisgefandi niðurstöðu sem gæti haft víðtæk áhrif á íslenskt réttarumhverfi og mögulega skapa vanda við framkvæmd fjölmargra EES-gerða sem nú þegar eru hluti af okkar lögum. Því skiptir öllu máli að við náum að leysa málið á okkar eigin forsendum.
Við þurfum að horfa til heildarinnar. EES-samningurinn er eitt mikilvægasta efnahagssamkomulag sem Ísland hefur gert. Hann tryggir íslenskum fyrirtækjum aðgang að 450 milljóna manna markaði sem er bæði fjölbreyttur og kröfuharður. Samningurinn veitir ekki aðeins aðgang að vöruskiptum heldur opnar hann leiðir til þjónustuviðskipta, vinnumarkaðar, menntunar og rannsókna. Með öðrum orðum: Samningurinn skapar veruleg tækifæri fyrir einstaklinga og atvinnulíf. Ef litið er til helstu atvinnugreina á Íslandi, sjávarútvegs, orkusölu, ferðaþjónustu og hugvitsdrifinna greina, þá byggja þær í vaxandi mæli á samkeppnishæfni og markaðsaðgengi. EES-samningurinn er grundvallaratriði fyrir afkomu þessara greina. Með því að tryggja forgang EES-gerða með bókun 35 eru skilyrði til jafnræðis, stöðugleika og réttarverndar tryggð. Fyrirtæki geta treyst því að lagaumhverfið styðji við áætlanagerð og viðskiptaákvarðanir þeirra. Það hefur einnig áhrif á áhuga erlendra fjárfesta sem líta til stöðugleika og samræmis í réttarkerfinu sem lykilatriða í viðskiptum. Einnig má nefna að á síðustu árum hefur vaxandi áhugi verið á því að Ísland verði leiðandi í nýsköpun á sviði grænna lausna, líftækni og stafrænnar þróunar. Til að slíkar greinar fái blómstrað og aðstoð úr evrópskum rannsóknasjóðum nýtist sem skyldi þarf regluverkið að vera samræmt og fyrirsjáanlegt. Bókun 35 styður við þessa stefnu og þar með framtíðarsýn fyrir íslenskt atvinnulíf.
Virðulegi forseti. Í umræðum hefur verið haldið fram að bókun 35 feli í sér framsal á fullveldi. Þetta er misskilningur. Frumvarpið tryggir aðeins að þau lög sem Alþingi hefur sett í samræmi við EES-samninginn hafi forgang þegar önnur landslög stangast á við þau. Þetta er þekkt meginregla í lagalegri túlkun og þýðir ekki að við séum að færa lagasetningarvald til Evrópusambandsins. Við höfum ekki gert það og ætlum ekki að gera það. Það er skýrt.
Gagnrýnendur hafa haldið því fram að bókunin feli í sér að Ísland leggist flatt fyrir erlendum lögum og reglugerðum en þessi gagnrýni byggir á því að rugla saman innleiðingu og forgangi. Reglur ESB gilda ekki hér nema þær séu sérstaklega innleiddar í gegnum EES og afgreiddar af Alþingi. Það eru ekki Brussel-búar sem setja lög á Íslandi. Það er Alþingi.
Við höfum einnig heyrt þá skoðun að þetta frumvarp breyti stjórnskipulegri stöðu EES-samningsins gagnvart stjórnarskrá Íslands. Það er rangt. Reglur EES njóta ekki forgangs gagnvart stjórnarskrá. Stjórnarskráin er æðsta réttarheimild landsins og það breytist ekki við samþykkt þessa frumvarps. Það sem frumvarpið gerir er að tryggja samræmi milli laga sem eru sett í framhaldi af EES-samningnum og annarra landslaga með því að skýra hvaða lög gilda þegar upp kemur árekstur.
Virðulegi forseti. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð lagt áherslu á skýra lagasetningu, vandað regluverk og að standa vörð um réttarstöðu borgaranna. Við höfum líka staðið vörð um samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi. Með samþykkt bókunar 35 styðjum við við þessar meginreglur. Við tryggjum fyrirsjáanleika í réttarframkvæmd, réttindi fyrirtækja og einstaklinga og eflum trúverðugleika íslensks réttar í alþjóðlegu samhengi. Við megum ekki gleyma að með því að standa við skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum sýnum við að við erum áreiðanlegur samstarfsaðili. Það skiptir máli fyrir viðskipti okkar, fyrir stöðu Íslands í samningaviðræðum og fyrir alþjóðlegt traust á íslenskum stjórnvöldum.
Það er einnig rétt að benda á að ef við tökum ekki þetta skref núna getur það haft víðtækar afleiðingar síðar. Málshöfðun fyrir EFTA-dómstólnum myndi ekki aðeins hafa í för með sér vantraust heldur einnig krefjast flóknari og víðtækari lagaumbóta. Þá væri réttaróvissa skaðleg fyrir íslenskt atvinnulíf og í raun andstæð markmiðum okkar um sterkt réttarumhverfi.
Að lokum vil ég árétta að bókun 35 er ekki breyting á stefnu Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Hún hefur ekkert með ESB-aðild að gera. Hún fjallar einfaldlega um framkvæmd EES-samningsins, samnings sem við höfum verið aðilar að í rúma þrjá áratugi. Þessi bókun snýst um að styrkja grundvöll samningsins, tryggja að hann virki eins og til var ætlast og auka lagaskýrleika og réttaröryggi í íslenskum rétti. Þetta er ekki framsal á valdi. Þetta er ekki skref inn í Evrópusambandið. Þetta er einfaldlega eðlilegt skref í átt að skýrari og traustari lagalegri framkvæmd á skuldbindingum sem við höfum þegar tekið á okkur.
Virðulegi forseti. Ég er meðvituð um að það eru skiptar skoðanir um þetta mál úti í samfélaginu og jafnvel í mínum eigin flokki en höfum það samt hugfast að Ísland á allt undir sterkum og fjölbreyttum útflutningi og milliríkjaviðskiptum. Greitt aðgengi að erlendum mörkuðum er þar lykilatriði. Við eigum að leggja metnað í EES-samninginn og EFTA-samstarfið og hafa áhrif á hvernig það þróast.
Virðulegi forseti. Ég tel þetta ekki vera framsal á valdi heldur nauðsynlegt og ábyrgt skref.