Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa líkað við ræðu mína. Það er alltaf ánægjulegt, það líkar ekki öllum það sem sagt er hér í þessum ræðustól. Ég sagði hér undir lok minnar ræðu að ég er meðvituð um að skoðanir eru skiptar í mínum flokki. Ég er meðvituð um að það eru ekki allir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins — eða við skulum orða það þannig að það eru margir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins sem eru hugsi yfir bókun 35 og ég held að þeir sitji heima og horfi á þessa útsendingu og fagni því að við eigum hér yfirvegaða umræðu um einmitt það sem hv. þingmaður segir. Þetta er líklega mikilvægasti tvíhliða samningur sem Ísland hefur nokkru sinni gert. Ég ætla að leyfa mér að segja að þessi samningur hefur aukið velsæld á Íslandi með þeim hætti og skapað hér lífskjör sem við ættum ekki ef ekki hefði komið til kjarks og þors þeirra sem stóðu hér í þessum sal fyrir rúmum 30 árum og samþykktu þennan samning. Hann hefur skipt höfuðmáli fyrir atvinnulífið, hann hefur skipt höfuðmáli fyrir velferð einstaklinga og þess vegna er það mikilvægt, að ég tel, að það sé alveg tryggt að réttindi okkar í gegnum þennan samning, réttindi fyrirtækja og fólks, séu túlkuð eins í öllum þeim löndum sem eru innan þessa samnings. Það skiptir höfuðmáli og það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að þegar við erum að tala hér um — (Forseti hringir.) ég fæ kannski að koma betur inn á þetta í seinna andsvari.