156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ég verð að segja að það hefur valdið mér smávonbrigðum að undanförnu að sjá að þegar EES-innleiðingar hafa verið að fara í gegnum salinn hefur taflan verið svolítið eins og jólatré. Sumir hafi verið gulir, sumir hafa verið grænir, sumir hafa meira að segja verið á rauðu, jafnvel þegar um er að ræða innleiðingar á EES-gerðum sem fyrri ríkisstjórnir hafa í rauninni samþykkt að taka upp í EES-samninginn. Ég vona að við náum að koma okkur inn í þá stöðu að það verði aðeins meiri einhugur um þessi mál. Ég vona þess vegna, af því ég ætla ekkert að draga meira úr þingmanninum með það hver afstaða einstakra þingmanna er, að sem flestir hafi hlýtt á ræðu hv. þingmanns, jafnt innan þings sem utan, og hrifist með.