156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:16]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti stjórnmálaflokkur á Íslandi og þar eru margar skoðanir og við erum ekki alltaf sammála og ég held að hv. þingmaður þekki það. Ég held að hann hafi einhvern tímann í einhverju fyrra lífi (Gripið fram í.) verið nálægt okkur. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sem stendur vörð um samkeppnishæfni Íslands og okkar efnahagslega sjálfstæði. Efnahagslegt sjálfstæði er alger grundvöllur fyrir sjálfstæði þjóðar. Skýr framkvæmd bókunar 35 tryggir að íslensk fyrirtæki njóti sama aðgengis og aðrar Evrópuþjóðir og ekki bara íslensk fyrirtæki heldur líka einstaklingar. (Forseti hringir.) Já, það eru skiptar skoðanir innan Sjálfstæðisflokksins, það hefur oft verið í gegnum tíðina, í fleiri málum en þessu. Við Sjálfstæðismenn erum vön því (Forseti hringir.) að finna okkar sameiginlega grundvöll til að standa á.