156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:18]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir ræðuna. Í þessu máli um bókun 35 felst að sett er afturvirk forgangsregla í íslenskan rétt sem felur í kjarna sínum í sér að allar þær EES-gerðir sem innleiddar eru hér á landi njóti forgangs umfram íslensk lög.

Forgangsreglan sem hér á að setja í lög er tímalaus í þeim skilningi að hún gildir bæði um öll þau hundruð gerða sem við höfum innleitt í íslenskan rétt síðustu 32 ár en hún gildir líka um allar þær gerðir sem við innleiðum í framtíðinni. Það væri í meira samræmi við stjórnarskrána og bann við afturvirkni laga að tryggja við þessa lögfestingu, ef hún verður að veruleika, að nýja forgangsreglan taki þá aðeins til gerða sem innleiddar verða í framtíðinni en taki ekki til gerða sem við höfum innleitt í fortíðinni. Gæti þingmaðurinn talið að það væri leið til sátta í eigin flokki að þetta frumvarp taki aðeins til gerða í framtíðinni þannig að þetta eigi ekki við um neitt afturvirkt?

Af því að ég hef aðeins meiri tíma, þá ætla ég líka að fá að spyrja hvort hv. þingmaður telji mögulega að önnur leið til sátta væri sú, fyrst við erum að fara að kjósa um inngöngu í Evrópusambandið, að við myndum bara kjósa um þetta í leiðinni.