Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Mig langar að ítreka að það er engin breyting á því að það eru einungis íslensk lög sem gilda á Íslandi og Alþingi hefur alltaf haft og mun alltaf hafa lagasetningarvaldið. Þessi bókun snýst um að skýra — þetta er svona túlkunaratriði á þeirri reglu sem Alþingi setti fyrir 30 árum. Þannig að ég tel að forgangsreglan, sem hv. þingmaður talar hér um; að bókun 35 geri EES-reglur ekki rétthærri en íslensk lög, eins og ég sagði áðan. Hér er einungis um að ræða forgangsreglu, samanber stjórnarskrá sem er rétthærri settum lögum og sett lög eru rétthærri reglugerðum. Lögum sem eiga rót sína að rekja til EES er veittur forgangur nema Alþingi mæli fyrir um annað. Þetta felur ekki í sér að EES-reglur gangi framar stjórnarskrá né að þær verði innleiddar öðruvísi en með lagasetningu Alþingis. Í rauninni þá samþykktum við bókun 35 fyrir rúmum 30 árum með því að ganga inn í EES-samninginn og nú erum við að kljást við túlkunaratriði. Mér finnst miklu stærra mál að ræða hér um inngöngu í Evrópusambandið og ég tel ekki nauðsynlegt að kjósa um bókun 35 í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég verð nú að segja það.