156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:22]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég náði því ekki alveg hvort hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir væri ekki sátt við að þetta frumvarp næði bara til gerða sem munu koma eftir að frumvarpið er mögulega samþykkt. Mér þykir hv. þingmaður tala eins og þetta skipti engu. Það er eitt við þetta mál sem ég velti fyrir mér: Ef þetta skiptir engu, af hverju erum við að samþykkja það?

Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir talaði um í ræðu sinni, fyrirgefið ef ég fer ekki alveg orðrétt með, að við gætum fengið einhvers konar verri niðurstöðu ef EFTA-dómstóllinn myndi dæma okkur í óhag og innleiðingin yrði þá meira íþyngjandi, ef ég er að fara rétt með. Mig langar bara aðeins að ná utan um það. Er hún þá að meina að þá væri verið að refsa okkur fyrir að hafa ekki gert þetta rétt eða erum við ekki að innleiða þetta alveg að fullu?