Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Það uppfyllir ekki EES-samninginn. Hér erum við að tala um að við þurfum að uppfylla hann ef þetta nær bara til sumra gerða. Málið í hnotskurn er það að við þurfum að uppfylla skyldur okkar gagnvart þessu samstarfi sem við gengum inn í. Í raun felur bókun 35 í sér að lög sem byggja á EES-skuldbindingum hafi forgang, þegar árekstrar koma upp, í samræmi við vilja Alþingis. Ég ætla því að ítreka að það verður engin breyting á því að íslensk lög gilda á Íslandi og lagasetningarvaldið er áfram á Alþingi Íslendinga.