156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:25]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til þess að þakka hv. 2. þm. Suðurkjördæmis og formanni Sjálfstæðisflokksins virkilega og innilega fyrir góða, kjarnyrta og vitræna ræðu um þetta mikla réttindamál sem skiptir okkur svo miklu máli og á að færa okkur svo langt yfir það sem við verðum að telja í daglegu tali til pólitískra dægurþrasmála. Það er lykilatriði fyrir íslenskan efnahag og íslenskt samkeppnislíf og umhverfi að við göngum að þeirri löggjöf sem við samþykktum í gegnum þjóðréttarskuldbindingar okkar sem vísri og að erlendir viðskiptavinir íslenskra fyrirtækja og lögaðila og þau sem sækja okkur heim geti gengið út frá því sem vísu að þau njóti tiltekinna réttinda. Hið sama á við um það þegar við fáum fólkið okkar heim til okkar sem er að mennta sig erlendis, sem er að sækja sér tækifæri innan Evrópska efnahagssvæðisins, að það geti komið hingað aftur til Íslands og viti að það er ekki verið að ganga fram hjá rétti þeirra. Þetta heyrði ég sterkt í ræðu hv. þingmanns og vil ég bara hreinlega fagna því.

Hins vegar hnaut ég líka um það í ræðu hv. þingmanns að hún nefndi að þetta væri ekki einfalt mál, ef ég skildi hana rétt, og þetta væri svo sannarlega ekki óumdeilt mál innan hennar stjórnmálaflokks, hvort sem það er innan þingflokksins eður ei, sem er skiljanlegt vegna þess að þetta er flókið mál. Mig langaði til þess að spyrja hv. þingmann hvort hún hefði skilning á því að fólk sem hefði kannski fengið þetta mál í fangið og ætti erfitt með að meðtaka jákvæða afstöðu sína gagnvart því —hvort hún hefði skilning á því af hverju fólk var skeptískt á þetta mál í upphafi en er mögulega kannski komið með aðrar skoðanir á þessu máli eftir nánari athugun og umræðu um þetta mikilvæga réttindamál.