156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:27]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé bara eðlilegt í íslensku samfélagi að við séum ekki alltaf sammála. Það er líka eðlilegt, eins og komið hefur fram í umræðunni hér í dag, að fólk hafi tækifæri til að skipta um skoðun. Já, það eru einhverjir sem hafa gert það, ég hef heyrt það. Ég held að hv. þingmaður hafi alveg orðið vitni að því að margir sjálfstæðismenn hafa stigið fram í ræðu og riti og tjáð sig um þetta atriði en ég kýs að líta á þetta svona. Við höfum fengið fólki ákveðin réttindi með EES-samningnum og Alþingi getur ekki með ógætilegri lagasetningu svipt fólk þessum réttindum með því að setja óvart lagareglu sem kveður á um lakari réttindi. Ef þingmenn vilja í krafti innlends lagasetningarvalds þrengja eða afnema þann rétt sem þeir hafa áður veitt á grundvelli EES-samningsins þurfa þeir að taka það skýrt fram.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf lagt áherslu á skýrt lagaumhverfi og réttindi borgaranna og ég tel að bókun 35 styrki réttaröryggi og tryggi, eins og ég sagði í ræðu minni, að íslensk fyrirtæki og einstaklingar geti treyst á EES-regluverkið eins og til var ætlast í upphafi þegar við gengum inn í þennan samning á sínum tíma.

Ég ætla líka að leyfa mér að segja það, virðulegi forseti, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið leiðandi í því að tryggja að Ísland standi sterkt í alþjóðlegu samstarfi án þess að afsala sér fullveldinu og bókun 35 er líklega gott dæmi um það.