156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég biðst afsökunar á að hafa stigið hér í ræðupúltið, verið svona fljótfær, það er nú ekki í fyrsta sinn sem ég er fljótfær. Hornsteinar EES-samningsins og hornsteinar innri markaðar Evrópu er fjórfrelsið. Það er grundvöllurinn að þátttöku Íslands í innri markaði Evrópu. Það er frelsi á vöru, þjónustu, fólki og fjármagni. Já, ég sagði hér áðan að fólk er alltaf að skipta um skoðun og mynda sér nýja skoðun. Ég get samt ekki látið hjá líða að nefna að það er auðvitað sérstakt að einn samstarfsflokkur í ríkisstjórn hafi talað mjög mikið gegn bókuninni á síðasta kjörtímabili. Meira að segja ráðherra í ríkisstjórn, eftir að ríkisstjórn var mynduð, sagði hæstv. innviðaráðherra að hann væri á móti bókun 35, (Forseti hringir.) þannig að það er sérstakt. Ég vil fá að segja það hér að ég er alin upp við það að maður eigi að vera skipstjóri á sínu skipi. Þar með vil ég segja (Forseti hringir.) að það fer vel á því að við höfum örlög okkar í okkar eigin höndum.