Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Alltaf gaman að fá að taka til máls og ræða hápólitísk mál og umdeild og það er bara skemmtileg áskorun. Hér er mál sem tengist miklu umræðuefni sem hefur verið lengi til umræðu í íslenskri þjóðmálaumræðu, hér á Alþingi og í lagadeildum háskólanna. Þar kannski kynntist ég þessu máli fyrst, við lagadeild Háskólans í Reykjavík þar sem voru nokkrir tímar í Evrópurétti sem fjölluðu einmitt um þetta flækjustig sem væri þarna. Ég man alveg að þetta var svolítið erfitt fyrir lögfræðinemann, að þurfa að sætta sig við að væri ekki til einhvern veginn hin rétta niðurstaða í þessu máli. Það væri ekki búið að útkljá þetta. Svo fær maður þetta skemmtilega hlutskipti hér, ég fór nú ekki í pólitík til að útkljá þetta mál svo sem, var ekki með það á stefnuskránni en er alla vega kominn í þá stöðu að ræða hvernig við gerum það, sem er bara ánægjulegt og gott.
Hér er mikið rætt í þessu máli hvort Evrópusambandið og EES-samningurinn sé að taka einhverjar ákvarðanir fyrir okkur hér á Íslandi, sé að hafa óeðlileg áhrif, við séum ekki að stýra okkur nógu mikið sjálf og annað slíkt. Hér hefur verið nefnt hvort við séum hrædd við EFTA, hrædd við Brussel, hrædd við bréfaskriftirnar og allt það. Ég get nú bara sagt strax að ég er það ekki og allra síst í þessu máli, bara alls ekki, ekkert að óttast í því. Ég held að ástæðan fyrir því að þetta sé svona tilfinningaríkt mál og umdeilt að mörgu leyti, það sem viðkemur EES-innleiðingum og þessum EES-samningi, sé þessi gullhúðun sem hefur átt sér stað , að við höfum gengið of langt í ýmsum málum, það hefur skapað vissa tortryggni, og svo líka það að það hefur verið mikil Evrópusambandsumræða á sama tíma, hvort við eigum að ganga inn í Evrópusambandið eða ekki og annað slíkt. Það hefur skapað vissa tortryggni og upplýsingaóreiðu í þessu.
En þá vil ég einmitt setja í samhengi við þetta mál sem við fjöllum um hér að ég held að markmiðið og það sem skiptir máli í þessu máli sé miklu meira að hér erum við að reyna að tryggja þau réttindi sem við erum að fá fyrir íslenska þjóð. Þetta eru svona ívilnandi réttindi eins og í hinum margumtalaða fæðingarorlofsdómi sem hérna er mikið talað um hér í þessu máli og er nefndur í greinargerðinni, dómi frá Hæstarétti. Þar voru þetta réttindi til fæðingarorlofs á meðan gullhúðunin og þetta umdeilda sem við höfum verið að gera er kannski meira í eftirlitskerfunum og leyfiskerfunum. Auðvitað getur þetta haft áhrif þar. Ég held að við þurfum að gera samt svolítil skil, það er mismunandi hvernig þetta fer fram, mismunandi atriði.
Ég held að við séum öll sammála um það að ef búið er að ákveða að innleiða ívilnandi réttindi fyrir borgara þessa lands í íslenskan rétt, við séum búin að taka ákvörðun um að þau muni gilda hér, að þá viljum við að þau gildi raunverulega hér. Því hef ég svolítið nálgast þetta mál, ekki það að ég ætlaði að vera hræddur við EFTA eða ESA eða annað slíkt heldur að horfa þröngt á þetta varðandi íslenska lagasafnið. Eftir að við erum búin að ákveða að við viljum að eitthvað af þeim reglum sem eru búnar að fara í gegnum allan þennan feril — ef við værum í Evrópusambandinu þá myndu reglur Evrópusambandsins taka gildi hér um leið og þær gengju í reglugerð Evrópusambandsins og við hefðum eitthvert smá svigrúm ef það væri tilskipun Evrópusambandsins, en af því að við erum ekki í Evrópusambandinu heldur með EES-samninginn þá höfum við tækifæri til að fá undanþágu og segja okkar skoðun og hafa áhrif á það svo það sé hægt að innleiða þetta í EES-samninginn. Svo þurfum við að koma hér heima og innleiða þetta í íslenskan rétt þannig að það eru margir varnaglar þarna á leiðinni. Svo þegar búið er að fara í gegnum alla þessa varnagla og innleiða þetta í íslenskan rétt en við göngum ekki nógu langt til að ganga úr skugga um að það sé ekki eitthvert annað ákvæði í íslenska lagasafninu sem takmarki þá lagareglu sem við vorum að innleiða með því að færa hana inn í íslenskan rétt þá virkar hún ekki, af því að við huguðum ekki að þessu. Ég lít svo á að þetta mál hér sé að tryggja það.
Ef við höfum ákveðið að einhver réttindi eins og í fæðingarorlofsmálinu eigi að gilda og við viljum að þau gildi á Íslandi, löggjafinn vill það, þá er ekki gott ef gömul regla kemur í veg fyrir það. Um það snýst fæðingarorlofssjóðsdómurinn. Ef ég segi kannski bara örstutt frá því, því að það skiptir máli í þessu, þá stendur skýrt í almennu lagareglunni um það hverjir eigi rétt til fæðingarorlofs að þeir sem hafa unnið einn mánuð á Íslandi á síðustu sex mánuðum og búið þar áður innan EES-lands eigi rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Svo stendur neðar í sömu grein að þeir eigi aðeins rétt á lágmarksframfærslu en að það eigi ekki að telja tekjurnar þeirra í EES-landinu með. Það er hin almenna regla eða var alla vega í fæðingarorlofsreglunum í þessum dómi. En svo stendur miklu neðar, af því að Evrópusambandið — eins og í gegnum EES-réttinn þá er búið að gera svona reglur í EES-samninginn sem tryggja frjálsa för fólks, það á að auðvelda frjálsa för á milli EES-landa og því vill EES-samningurinn að laun úr einu EES-landi séu talin með í því EES-landi sem þú flytur til og það stendur bara í lögunum að alþjóðlegir samningar eigi að gilda og þar er verið að vísa í EES-samninginn. En það er bara sagt að við viljum að reglan í EES-samningnum gildi en hin sértæka og eldri og skýrari lagaregla er bara miklu skýrari og er sérregla þannig að hún gildir samkvæmt dómnum.
Þetta er að hafa áhrif innan íslenska lagasafnsins og því er ég að segja að ég bara átta mig ekki á því og ég tel það, ég ætla ekki að fullyrða það, tel að það séu ekki rosalega mörg svona ákvæði sem stangast svona skýrt á af því að oftast er þetta innleitt með skýrari hætti og farið betur yfir þetta, reglugerðirnar lesnar saman við íslensk lög og annað slíkt þannig að ég held að það hafi oftast verið pælt í þessu. Ég hygg án þess að vita það, og raunar spurði ég hv. þm. Sigríði Andersen, sem kom að undirbúningi þessa frumvarps, hvort það hafi verið eitthvað rætt þar hvert umfangið getur verið sem hefur áhrif á og þá er það umfang sem er í réttinum í dag og eftir alla þessa umræðu — ég held að það sé bara farið að virka nú þegar en hvað þá eftir ef þetta verður samþykkt, þá hygg ég að það verði enn meira pælt í þessu og þetta mun kannski hafa minni áhrif á það sem mun verða innleitt í íslenskan rétt hér eftir en auðvitað ef það kemur ný regla inn og það er eitthvert gamalt ákvæði sem þetta mun stangast á við og það hefur ekki fundist við innleiðinguna þá náttúrlega getur þetta haft áhrif. En hversu mikið það umfang er, það er ég ekki alveg með á hreinu og átta mig eiginlega ekki á, og hvort það sé einhver munur þar á milli hvort við séum að tala um réttindakaflann þar sem borgararnir eru að fá einhver ívilnandi réttindi, þar vil ég náttúrlega að sjálfsögðu að þetta eigi við, eða hvort það sé eitthvert svona mál sem maður getur mögulega séð fyrir sér þegar við erum að tala um leyfisskyldu og eftirlit og annað slíkt þar sem ég held einmitt að við höfum farið meira út af sporinu varðandi gullhúðun og annað slíkt og þurfum að laga til þar og hafi skapað þessa tortryggni sem hún talaði um áðan, talaði um þessa tortryggni.
Ég held að nefnilega að við höfum verið sjálfum okkur verst. Ég held nefnilega að við getum alveg sagt að mikið af þeim EES-reglum sem við höfum verið hvað svekktust út í eða pirrað okkur hvað mest á eða fundist þær vera að skemma fyrir okkur hafi ekki alltaf verið EES-samningnum að kenna. Það hefur meira verið okkur sjálfum að kenna, hvernig við innleiddum þær og hvernig við framkvæmdum löggjöfina og hvernig við fórum með þetta, hvernig við nýttum okkur þessa reglugerð. Ég held að við verðum bara að horfast í augu við það sjálf og ákveða að við ætlum að gera betur í því. Mér finnst bara allir vera saman á þeim báti. Það er verið að tala stanslaust um að það eigi ekki að fara umfram. Það er endalaust verið að endurskoða ferlana við innleiðinguna á þessu. Við erum orðin miklu meira vakandi fyrir þessu. Það er farið að nota gervigreind til að koma í veg fyrir þetta. Við erum meira að segja búin að samþykkja á þessu þingi frumvarp þar sem gullhúðun er afnumin, afhúðun eða hvað við viljum kalla þetta eða blýhúðun og annað slíkt. Það er hægt að nálgast þetta á margan hátt.
Ég held að aðalatriðið hér sé bara það að við pössum okkur í þessu máli sem öðrum að við séum ekki að ganga lengra eða gera eitthvað meira íþyngjandi fyrir okkur en við viljum, að við reynum að nýta EES-samninginn eins vel fyrir okkur og við getum, tryggja réttindi borgaranna, tryggja réttindi og tækifæri viðskiptanna og íslensks samfélags og gerum okkur ekki lífið erfiðara með því að innleiða þetta rangt, nýta ekki þau tækifæri sem við höfum eða vera að reyna að taka upp eitthvað frekari skilyrði heldur en það er. Ef við gerum það þá mun okkur farnast vel og sýna enn og aftur að við höfum ekkert með inngöngu í Evrópusambandið að gera heldur bara mun þetta gagnast okkur vel á meðan við búum við þetta.
Ég ætla samt að segja það hvað varðar Evrópusambandið að ég fagna því samt að það er farið að sjá eigin mistök, hvað það hefur gengið langt í reglusetningunni. Það er búið að draga verulega úr samkeppnishæfni Evrópu sem er ekki gott. Þau sjá líka þörfina og mikilvægi á orkuöfluninni og hafa því búið til plan sem heitir REPowerEUog annað til að draga úr öllum þessum flækjustigum og hindrunum til orkuöflunar. Þetta eru bara góð mál og við eigum bara að fylgja þeim í því að draga úr þessum kröfum og mér heyrist hæstv. ríkisstjórn núna leggja áherslu á að gera það og lýsi ég bara fullum stuðningi við það og mun ekki standa á mér í því.
Í lokin ætla ég bara að segja að ég horfi svolítið á þetta þannig að þetta eru aðallega þá bara áhrifin eru innan íslensks réttar eða íslenskra stjórnvaldsfyrirmæla sem við höfum tekið sjálfstæða ákvörðun um að setja í íslenskt lagasafn eða setja inn í íslensk stjórnvaldsfyrirmæli, annað ekki. Þetta hefur ekki áhrif á neitt annað og ég hygg að þetta sé mun meira ívilnandi fyrir borgarann, að þetta eigi við þegar við erum að innleiða réttindi sem borgarinn á eins og í fæðingarorlofsmálinu. Þá var það borgarinn sem átti réttindin en auðvitað hefði það verið aukinn kostnaður fyrir ríkissjóð þannig að það er þá hinn peningurinn, hvorum megin hefðum við vilja standa þar? Ég vil benda á að það var búið að taka ákvörðun um það að EES-samningurinn ætti að gilda, ákvæði er kæmi að þessu með fæðingarorlofið í EES-samningnum ætti að gilda þegar það væri en hitt ákvæðið var bara skýrara og var meira sérákvæði og þess vegna gilti það. Það er það sem við erum að fjalla um hérna og ætla ég ekkert að vera að flækja þetta neitt frekar.