Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir greinargóða ræðu. Það sem hefur aðeins truflað mig í þessari umræðu — hún er svo sem áhugaverð umræðan sem hefur farið fram hérna í kvöld — er það sem andstæðingar bókunarinnar tala um varðandi löggjöfina. Ef ég má, með leyfi forseta, lesa hér úr nefndaráliti minni hluta utanríkismálanefndar:
„Með frumvarpi því sem hér er til umfjöllunar er lagt til að regluverk Evrópusambandsins, tekið upp á Íslandi með vísan til EES-samningsins, verði æðra þeim lögum sem samin eru í íslenskum ráðuneytum eða á Alþingi og samþykkt af Alþingi í þeim tilvikum þar sem þetta tvennt stangast á. Í ljósi umræðna á Alþingi og í samfélaginu í aðdraganda staðfestingar EES-samningsins má heita fullvíst að ekki hefði verið vilji til að samþykkja samninginn á slíkum forsendum.
Athugasemdir talsmanna frumvarpsins um að í raun verði Evrópusambandslöggjöf eins íslensk og þau lög sem eru samin, sett fram og afgreidd innan lands halda ekki vatni.“
Spurning mín til hv. þingmanns er sú: Er einhver munur á íslenskum lögum eftir því hvaðan þau eru upprunnin, hvort þau eru samin í íslensku ráðuneyti og samþykkt hér á Alþingi eða hvort þau eru upptaka á EES-gerðum?