156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:54]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Mig langar að nefna við hann fullveldishugtakið og hvort það sé einhver hætta á því að fullveldinu sé ógnað með því að taka bókun 35 í íslensk lög. Það er gjarnan talað um bæði innra fullveldi og ytra fullveldi þar sem ytra fullveldið veitir fullvalda ríki heimild til að semja við önnur ríki — ytra fullveldi telst vera réttur ríkis til að koma fram á alþjóðavettvangi, m.a. að gerast aðili að alþjóðasamningum og gerast aðili að alþjóðastofnunum — þannig að stutta spurningin mín er sú: Felst einhvers konar afsal fullveldis í því að taka bókun 35 upp í íslenskan rétt?