156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:55]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, því er fljótsvarað að það felst engin eftirgjöf af fullveldinu í því, sérstaklega því það stendur svo skýrt að þessi lagaregla er bara um skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu. Innleiðir þýðir það að við færum það í íslensk lög, við tökum ákvörðun um að setja það í íslenskan rétt, það er enginn að fara að gera það fyrir okkur og þessi forgangsregla mun ekki gilda nema við hér á Alþingi Íslendinga, sem erum hér í hvert skipti, höfum ákveðið að setja þessa reglu físískt inn í réttinn. Þetta er nú bara lagafrumvarp, við erum ekki að tala um stjórnarskrárbreytingu, þannig að ef eitthvað fer á verri veg í þessu þá bara tökum við þessa reglu úr gildi aftur með annarri lagabreytingu.