Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir góða ræðu. Það skiptir okkur þingmenn sem ekki erum löglærðir mjög miklu máli að fá að taka þátt í samtali þar sem þingmenn sem eru löglærðir, og hafa kafað dýpra í þetta en við hin getum gert með góðu móti, ræða málið. Sérstaklega var áhugavert að heyra hv. þm. Vilhjálm Árnason tala um reynslu sína úr náminu þar sem verið var að fara inn í þetta mál og skoða það. Það endurspeglaði mjög umfjöllun í hv. utanríkismálanefnd þegar við fengum einmitt akademíska sérfræðinga til að fara í þetta mál með okkur. Sú umfjöllun endurspeglaði dálítið það sem hv. þingmaður talaði um.
Mig langaði að beina fyrirspurn til þingmannsins í þessu andsvari mínu varðandi tvennt. Í fyrsta lagi er fyrirspurnin á þeim nótum sem hv. þm. Grímur Grímsson var á hér rétt áðan varðandi stjórnarskrána og hugsanlega röskun á henni eða að hún sé í einhverri hættu. En mig langar líka sérstaklega að biðja hv. þm. Vilhjálm Árnason um að fara aðeins inn á það hvernig við getum talað við almenning, fólk sem ekki er löglært, og útskýrt þetta sjónarmið fyrir honum, sjónarmið sem ég hef grun um að þingmaðurinn tali um varðandi stjórnarskrána. Hvernig getum við útskýrt þetta fyrir fólki þannig að það skilji raunverulega um hvað þessi bókun snýst og að hún hafi ekki áhættu í för með sér?