156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[22:58]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er einmitt mjög mikilvægt að svona samtal eigi sér stað í þessari málstofu á milli einstaklinga með ólíka reynslu og að talað sé við ólíka hópa til að reyna að upplýsa málið og skýra það af því að þetta er alls ekki einfalt mál. Ég tel að þetta hafi ekki áhrif á stjórnarskrána. Þegar við erum að ræða hvort þetta hafi áhrif á stjórnarskrána, að þetta brjóti gegn henni, þá er verið að fjalla um þau ákvæði stjórnarskrárinnar að ekki megi framselja neitt vald til erlends ríkis. Við höfum þess vegna alltaf passað upp á það að þegar í hlut eiga alþjóðlegar stofnanir eða eftirlitsstofnanir inn EES-samningsins þá sé til staðar tveggja stoða lausn, sem EES-samningurinn er einmitt.

Það mál sem við erum að tala um hér, bókun 35, hefur bara áhrif á þau ákvæði EES-samningsins sem eru búin að fara í gegnum tveggja stoða kerfið og við ákveðum að setja inn í íslenskan rétt. Þetta hefur því bara áhrif á það sem íslenski löggjafinn hefur ákveðið að gildi á Íslandi. Forgangsreglan getur ekki gilt nema íslenski löggjafinn hafi ákveðið að þessi lagaregla eigi að gilda á Íslandi.