Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er rétt skilið hjá hv. þingmanni að lög á Alþingi eru alltaf bara lög samþykkt á Alþingi Íslendinga óháð uppruna þeirra. Það þarf alltaf að taka ákvörðun um að leggja þau fram sem frumvörp. Oftar en ekki, þegar verið er að innleiða EES-gerðir eða reglur vegna EES-samningsins, eru þær umorðaðar og lagaðar að íslensku lagaumhverfi innan þess svigrúms sem við höfum. En ég vil þó nefna það aftur hér að það getur verið, og það hefur gerst, að við innleiðum einhverja reglugerð með því að vísa í textann og annað slíkt, og þá er ekki alveg sami skýrleikinn til staðar. Þar getur verið smá munur sem getur flækt lagatúlkunina.