156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:05]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir þessa spurningu og fagna því bara að fá að svara henni hér. Ég get ekki séð, og get ekki tekið undir það, að hér sé verið að framselja lagasetningarvald eða ganga á fullveldið. Það kemur skýrt fram, í því máli sem við fjöllum um hér í dag, að íslenski löggjafinn er alltaf við stýrið. Ef hann sér eitthvað sem er honum á móti skapi, ef hann er ekki sammála því að einhver ákvæði sem hafa verið tekin upp í EES-samninginn, tveggja stoða kerfi, eigi að koma hingað inn í íslenskan rétt — ef hann er á móti því og hefur áhyggjur af því að þetta sé ekki það sem við viljum hafa í íslenskri löggjöf þá er það bara tekið skýrt fram að það ákvæði hafi ekki sérstöðu. Við, sem erum íslenski löggjafinn, getum þá bara tekið það fram. Við erum alltaf við stjórnvölinn. Íslenski löggjafinn er alltaf við stjórnvölinn. Ég sé ekki hvernig það brýtur á fullveldinu ef þú ert alltaf í bílstjórasætinu sjálfur.