Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. En það er einmitt það sem Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, er að benda á, þ.e. að í þeim tilvikum þegar lög stangast á eða upp koma efasemdir um túlkun þá geri stjórnarskráin ekki ráð fyrir annarri lausn en lagatúlkun; að það sé með öðrum orðum þannig að stjórnarskráin leyfi hreinlega ekki að löggjafinn veiti almennum lögum forgang í eitt skipti fyrir öll inn í framtíðina, fram yfir önnur lög. En það er einmitt það sem þetta frumvarp gengur út á, að veita tilteknum almennum lögum forgang fram yfir önnur almenn lög. Hann vill meina að stjórnarskráin geri ekki ráð fyrir því. Það er þess vegna sem ég hef haldið því fram í þessari ræðu, eða dregið í efa, að Hæstiréttur muni líta til þessara laga nái þetta fram að ganga.
Hvað segir hv. þingmaður um þetta? Hversu raunhæft telur hann að þetta frumvarp, nái það fram að ganga, muni einhvern tímann ná tilætluðum árangri, markmiðum sínum?