156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:08]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þegar reyna mun á þetta forgangsákvæði þá held ég að við þurfum líka að velta því svolítið fyrir okkur hvenær við ætlum að kalla einstaka ákvæði EES-samningsins, einstakar lagagerðir eða hvað við viljum kalla það, almenn lög? Eða er það sértækt á sviði vinnuréttar og annað slíkt? Enn og aftur bendi ég á það að ef það fer gegn okkar gildum, okkar sérlögum, sem við viljum að gangi fram, þá erum við í bílstjórasætinu og getum alltaf breytt því og annað. Það er því ekki verið að setja hér almenn lög sem gilda fram yfir íslensk sérlög af því að þetta er allt af svipuðum meiði á sértæku sviði eins og vinnulöggjöf og sérstökum réttindasviðum.