156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:30]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni, ég held að þetta hafi svolítið verið hugmyndin hjá stjórnarliðum en það er samt svolítið undarlegt eða alger mislestur á stöðunni. Það er svo gott að takast á um málefnin, vera ekki endilega sammála, fá sjónarhornin fram og finna bestu leiðirnar. Það er það sem við erum að reyna að gera í flestöllum málum en hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans koma yfirleitt ekki hér í salinn og ræða við okkur. Ég var að velta fyrir mér varðandi menntavinkilinn — nú er ég aftur að renna út á tíma, kannski kemur hv. þingmaður aftur í ræðu og þá kem ég aftur í andsvar — hvort hv. þingmaður geti ímyndað sér hvort þetta gæti bjargað námsmatsfrumvarpinu. Það var einhver reglugerð sem stangast á við það, sem gæti komið til góða í þessu máli.