156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:33]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Já, hann er ekki löglærður en við reynum að tala mannamál svo að menn skilji þetta. Við gengum inn í þennan samning fyrir rúmlega 30 árum og innleiddum þessa reglu hvað varðar EES-réttinn, þ.e. innleiðingu hér á landi, á þann veg að ef þær reglur væru í andstöðu við íslensk lög og íslenskar reglur þá ætti að skýra íslensku reglurnar, að svo miklu leyti sem unnt væri, til samræmis við EES-reglurnar. Það er reglan sem er í gildi og hefur verið í gildi og hefur gagnast okkur alveg ágætlega. Dómstólar hafa jú stundum dæmt þannig að íslensku reglurnar hafa haft ákveðinn forgang, eðlilega þær eru samdar hér og samþykktar af Alþingi. En nú á sem sagt að breyta þessu, hv. þingmaður. Ef EES-lagaákvæði sem er réttilega innleitt er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði, íslensku, sem við semjum og samþykkjum hér á Alþingi, og við sem þingmenn höfum greitt því atkvæði þegar það fer út í þjóðfélagið sem lagaákvæði — hvað gerist þá? Ef það er ósamrýmanlegt þá gildir EES-ákvæðið, bæði í nútíð og framtíð. Hvað finnst hv. þingmanni um að lögum sem hann samþykkir hér á Alþingi verði svipt úr gildi ef það finnst einhver EES-regla sem er innleidd hér, ef hún er í andstöðu? Hvað finnst hv. þingmanni um svona framkomu gagnvart löggjafarvaldi sem hann er hluti af? Þetta er svona einfalda skýringin.