Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Já, ég ætla nú ekki að pína hv. þingmann með þessu orðalagi meira. En hv. þingmaður minntist á að fólk þyrfti að tala til almennings. Það hafa fleiri hv. þingmenn einmitt talað um það. Af hverju eru menn með áhyggjur af þessu, herra forseti? Af hverju skyldi það vera? Það er vegna þess að almenningsálitið er andstætt þessu. Eðlilega, hv. þingmaður. Þeir sem fylgja þessu, þeir sem styðja bókun 35, geta ekki talað á mannamáli við almenning í landinu svo að hann skilji þetta. Af hverju skyldi það vera? Getur hv. þingmaður skýrt það út fyrir mér? Af hverju geta menn ekki talað þannig til almennings í landinu, þeir sem styðja þetta, á þann veg að hann skilji þetta?