156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:37]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir seinna andsvar. Ég reyndi, í mætti mínum, að tala hér þannig að almenningur myndi skilja það sem ég sagði hér í ræðustól. Auðvitað er þetta mál flókið og lagalegs eðlis og þessi ræða sem ég flutti — mögulega hafa einhverjir skilið hana. Ég vona að hv. þm. Karl Gauti Hjaltason hafi skilið hana, hann hefur komið hér í andsvör við mig. Þegar maður er að ræða mál sem eru flókin, þegar það þarf góðan tíma til að ná botnfestu í þeim, þá er það kannski þannig að maður á erfiðara með að fanga hugtökin sem útskýra málið á einfaldan hátt frekar en flókinn.