156. löggjafarþing — 55. fundur,  6. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[23:39]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Vegna orðaskipta sem áttu sér stað hér fyrr í andsvörum þá vil ég segja að fólk hefur mikla trú á lævísi okkar stjórnarliða; að við höfum einhvern veginn lætt okkar mönnum inn í fyrri ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og látið þar búa til frumvarp handa okkur sem við getum síðan lagt fram í dag til að reka fleyg í frábæra vináttu innan stjórnarandstöðunnar. Bara ef ég væri svo klókur, þá væri það gott. [Hlátur í þingsal.] Ég verð að hryggja þingmenn með því að sú er því miður ekki raunin og það er ýmislegt annað sem vakir fyrir okkur heldur en akkúrat þetta; fyrst og fremst efni málsins sem er að greiða úr þessari lagaflækju sem hefur myndast í kjölfar dóma íslenskra dómstóla.

Mig langar aðeins að nefna eitt sem þingmaðurinn nefndi í ræðu sinni. Það er munurinn á Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Munurinn stafar m.a. af því að Liechtenstein er eineðlisríki, það er auðveldara fyrir þau að taka þetta beint upp. Auk þess er þýska þar ríkismál þannig að lögin eru oftast nú þegar til á þeirra tungumáli. Noregur hefur, eins og hefur komið fram, í rauninni innleitt bókun 35 með sterkara orðalagi en við höfum gert.

Af því að við höfum hér rætt um lesskilning og þingmaðurinn velti fyrir sér hvort menn hafi skilið ræðu hans rétt ætla ég að túlka ræðu hans með þeim hætti að hann styðji málið og ætli að ýta á græna takkann þegar kemur til endanlegrar afgreiðslu. Mig langar að fá þingmanninn til að staðfesta að geta mín til að lesa og hlusta mér til gagns sé rétt.