Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég hef lært ýmislegt hér á þinginu og er orðinn klókur í því að eiga orðastað eins og ráðherrar gera í óundirbúnum fyrirspurnum; þ.e. að svara ekki en tala bara í hringi. Ég reyndar svaraði hv. þm. Pawel Bartoszek hér um daginn í öðru máli, mig minnir að það hafi verið um greiðslur yfir landamæri í evrum, þar sem hann spurði mig ákveðinna spurninga og þar vékst ég ekki undan og svaraði beint. En ef ég er alveg heiðarlegur, þá eru einhverjir dagar í að kosið verði um þetta mál og vissulega er lesskilningur hv. þingmanns og hlustun greinilega í góðu lagi [Hlátur í þingsal.] því ég talaði frekar jákvætt um þetta frumvarp. Ég á eftir, eins og ég nefndi — það nám er þannig að það tekur tíma að meltast. Ég hef sveiflast til og frá í þessu en það er einhvers konar þjóðernistilfinning sem segir nei, en svo er einhvers konar skynsemi og lestur sem segir já. Eins og ræða mín var uppbyggð þá er það rétt að ég er töluvert jákvæðari en neikvæðari, ég er þá alla vega hreinskilnari en ráðherrar þessarar ríkisstjórnar að ræða um mína skoðun á þessu máli og almennt á málum. En burt séð frá því hvenær þetta mál kom og hvort Katrín Jakobsdóttir og hennar ríkisstjórn hafi komið þessu til leiðar á sínum tíma þá er það ríkisstjórnin sem hefur dagskrárvaldið, hún getur stýrt því hvenær mál koma fram.