Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir sitt annað andsvar. Ég held að fullveldi og erlendur dómstóll geti farið saman. Hvort þetta sé einhvern veginn í mótsögn hvort við annað, það má finna einhverja fleti á því að þetta skarist með einhverjum hætti. Ég held að bókun 35 gangi ekki inn á fullveldi okkar. Ég held ekki. Ég segi held af því að mér finnst óþægilegt að fullyrða um eitthvað sem ég hef ekki djúpa og mikla þekkingu á. Þeir sem hafa mælt gegn þessu — það er fullt af fólki sem mér finnst málsmetandi og ég hef í mörgum málum tekið mark á þeim. Ég þarf að leggjast í góðar pælingar þrátt fyrir að, eins og ég sagði áðan, það sé töluverð græn slikja yfir sjálfum mér eins og staðan er núna.