156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[10:52]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ræðu og ætla að vitna hér í málsvara skepnunnar á þskj. 666. Þar segir:

„Í ljósi umræðna á Alþingi og í samfélaginu í aðdraganda staðfestingar EES-samningsins má heita fullvíst að ekki hefði verið vilji til að samþykkja samninginn á slíkum forsendum.“

Mér þótti þingmaðurinn sem betur fer aðeins draga úr þessu með því að segja að að hennar mati væri ekki víst — ef ég hlustaði rétt á ræðu hennar — að það hefði tekist að samþykkja sáttmálann á þessum forsendum. En í ljósi þess sem ég las hér upp í gær, sem í rauninni kemur fram í umsögn Björns Bjarnasonar, fyrrum þingmanns og ráðherra, þar sem hann einmitt segir að það hafi verið ætlun hans og annarra í utanríkismálanefnd á sínum tíma að innleiða bókun 35 með réttum hætti en síðan hafi túlkun dómstóla gert að verkum að hún hafi ekki verið rétt og hann styðji nú þessa nálgun sem hér er, þá spyr ég: Er ekki fullbratt til orða tekið að halda því fram að ekki hefði tekist að samþykkja samning (Forseti hringir.) með þessum hætti þegar þeir þingmenn sem þá voru hafa haldið öðru fram?