156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[10:54]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyrði að hann spurði þessarar sömu spurningar í gær í umræðum undir ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Það er erfitt fyrir mig að útskýra hugarflug hv. fyrrverandi ráðherra, Björns Bjarnasonar, en ég stend föst á þessu. Ef ég hef sagt eða eitthvað dregið úr vil ég bara nota tækifærið og ítreka eða segja alveg fast að ég er nánast örugg á því að við værum ekki aðilar að samningnum um EES ef bókun 35 hefði verið innleidd með þeim hætti á þeim tíma eins og nú á að gera. Ég bara stórlega efast um það. Það er ástæða (Forseti hringir.) fyrir því að þetta er ekki fullkomlega inni í samningnum, að þetta er bókun. Það er vegna þess að það var erfitt fyrir marga að kyngja bókun 35.