156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[10:55]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Þá verðum við bara að vera sammála um að vera ósammála. En það er annað sem kom fram í andsvörum hennar hér í gær sem vakti athygli mína. Hún velti því upp við þingmenn sem töluðu fyrir málinu að hún gagnrýndi að þeir hefðu ekki með sjálfstæðum hætti lagt mat á ýmis þau álitaefni sem hér eru uppi en einungis stuðst við álit fræðimanna. Ég vil eiginlega bara andmæla þeirri hugmyndafræði. Hér höfum við fengið færustu fræðimenn eins og Gunnar Þór Pétursson, Þorgeir Örlygsson og Margréti Einarsdóttur til að leggja mat á þessi mál. Ég er ekki viss um að t.d. ef Pawel Bartoszek, sem hefur meistaraprófi í víxlinni reiknialgebru, myndi búa til sitt eigið álit myndi það einhvern veginn bæta málið eða hinn lagalega undirbúning þess. Er ekki bara mjög faglegt að vinna mat sitt á þessum atriðum byggt á mati færustu sérfræðinga?