156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[10:56]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvarið. Ég get alveg tekið undir það, það er bara eðlilegt. Sú sem hér stendur er ekki löglærð heldur; ég er með mastersgráðu í alþjóðasamskiptum þannig að við erum kannski svolítið á svipuðum slóðum. Auðvitað eigum við að hlusta á sérfræðinga en hins vegar vil ég benda á það að þeir eru ekki sammála. Þeir lagasérfræðingar sem hafa tjáð sig um málið eru ekki sammála. Sumir telja að þessi innleiðing feli í sér stjórnarskrárbrot og sú sem hér stendur tekur það mjög alvarlega að hafa undirritað drengskaparheit að stjórnarskrá. Ég mun aldrei brjóta stjórnarskrána, kemur ekki til greina. Mér finnst að þegar himinn og haf eru í raun og veru á milli þeirra mestu sérfræðinga í skoðunum sem hér um ræðir (Forseti hringir.) þurfum við að fara varlega og vanda okkur. Við þurfum að vanda okkur vegna þess að það er ekkert grín (Forseti hringir.) þegar staðið er frammi fyrir því (Forseti hringir.) að stjórnarskráin sé brotin.

(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmann um að virða ræðutíma sem er ein mínúta.)