156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[10:58]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður nefndi hér að hún væri ekki löglærð. Ekki ég heldur, ég er bara einhver lilli úr Keflavík. Ég velti því fyrir mér að við undirgengumst samninga eins og að ganga í NATO á sínum tíma 1949. Við gerðum varnarsamning við Bandaríkin þar sem við framseljum vald til bæði NATO og Bandaríkjanna og ég spyr: Er eðlismunur á þessu? Ekki breyttum við stjórnarskrá á þessum tíma. Við bara undirgengumst þetta og höfum staðið við þær skyldur sem því hafa fylgt. Þá velti ég fyrir mér: Hver er munurinn á því að standa við þær skuldbindingar sem EES-samningurinn leggur á okkur? Við samþykkjum hér tilskipanir og reglugerðir endalaust af því að við vitum að við verðum að gera það. Það er hluti af EES-samningnum að standa við þær skuldbindingar sem í samningnum felast. (Forseti hringir.) Bókun 35 er ein slík skuldbinding þannig að ég velti fyrir mér: Hver er munurinn (Forseti hringir.) og hvers vegna felst í því stjórnarskrárbrot að standa við það sem í þessum samningi (Forseti hringir.) bókunar 35 stendur?

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar lengd ræðutíma sem er ein mínúta.)