156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[10:59]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Stutta svarið er þetta: Við höfum ekki framselt neitt vald til Atlantshafsbandalagsins eða Bandaríkjanna. (Gripið fram í.) Við höfum bara ekki gert það. Það er alveg á tæru. Við höfum ekki gert það. Við munum ekki gera það. Við höfum fullt vald yfir okkar samningum og aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningnum við Bandaríkin. Það er bara af og frá að við höfum gefið eitthvað frá okkur í þeim efnum.

Varðandi það sem hv. þingmaður segir um að við verðum að innleiða frá ESB. Það er bara ekki þannig. Við þurfum ekki að innleiða allt. Þess vegna eigum við sjálf að hafa vald yfir því hvað við innleiðum og hvað ekki. Ég óttast það að með innleiðingu á bókun 35 komi hér færibandið og holskeflan yfir okkur til viðbótar við það sem þegar er. Ég held að það sé bara nóg komið.