Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mér fannst seinni hlutinn skemmtilegri þar sem við vorum að fjalla um lögtæknina í þessu ótrúlega tæknilega en mikilvæga frumvarpi. Mér finnst eðlilegt að það séu til staðar einhvers konar stjórnskipulegir fyrirvarar í tengslum við ákveðin atriði vegna þess að þetta álitaefni er ekki nýtt af nálinni, þannig að það sé alveg á hreinu. Inntakið í lagarökum hv. þingmanns byggir dálítið á grein sem skrifuð var 2014. Ef ég væri að fara yfir ritgerð um þetta málefni og það væri vísað í ritgerð Markúsar úr afmælisriti EFTA 2014 og þá fyrirvara sem hann setur vegna skorts á lagaákvæði í íslensku stjórnarskránni um valdframsal til alþjóðastofnunar líkt og gert er í Noregi, ef það væri bara vísað til þeirra raka en með engu vísað til nýrri raka (Forseti hringir.) sem voru í afmælisriti EFTA frá 2024 hjá Benedikt Bogasyni (Forseti hringir.) og Þorgeiri Örlygssyni — hvers vegna er ekkert rætt um þau álitaefni sem þar eru rakin? (Forseti hringir.) Hvers vegna kemur hv. þingmaður í engu inn á þau atriði?
(Forseti (EÁs): Forseti minnir þingmenn á að ræðutími er ein mínúta.)