156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:08]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hún segir það ekki gott að vísa í gamlar greinar eða gömul viðtöl þannig að ég skal vitna til nýlegra efnis. Ég ætla að vitna til Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, sem ritaði eftirfarandi 18. apríl 2023, með leyfi forseta:

„Að mínum dómi er ljóst að efni fyrrgreinds frumvarps stenst ekki fullveldisrétt þjóðarinnar sem allir virðast vera sammála um að felist í stjórnarskránni. Það er því ástæða til þess að benda á að ekki er unnt að samþykkja nefnt frumvarp sem lög í landinu nema fyrst hafi stjórnarskránni verið breytt í þá veru að heimila svona lagasetningu.“

Þetta hefur ekkert breyst. Þetta hefur ekkert breyst. Nei, þetta hefur ekkert breyst. Ef ég mætti benda hv. þingmanni á að lesa (Forseti hringir.) sér til í þessu riti, það sem Jón Steinar Gunnlaugsson skrifaði 18. apríl 2023, (Forseti hringir.) þá myndi hún kannski (Forseti hringir.) haga málstað sínum öðruvísi.