Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir fína ræðu. Mig langar rétt að tæpa á því í byrjun hvort hún telji að þetta sé ein af höfuðsyndum stjórnmálamanna. Það er að skipta um skoðun, hlýða á rök samstarfsflokka jafnt sem stjórnarandstöðuþingmanna og fara yfir þau og taka síðan afstöðu út frá því. Mér finnst það einfaldlega vera kostur þegar það er gert, að hlýða á rök, hvort sem þau koma frá stjórnarandstöðu eða stjórnarþingmönnum, og taka tillit til þeirra og móta síðan sína afstöðu. Mér finnst sérstakt að tala óvirðulega um það og sérstaklega þegar það snýr að þessu máli, sem er kannski miklu minna þegar grannt er skoðað en hv. þingmenn Miðflokksins gefa í skyn.