Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef fullan skilning á því að Flokkur fólksins sé jafnvel eitthvað viðkvæmur fyrir því að vakin sé athygli á því að hv. þingmenn hans og hæstv. ráðherrar hafi skipt um skoðun. En það gerist bara — ég bið þingmanninn að vera alveg rólegan. Það gerist bara. Mér er ekki kunnugt um að nokkurt samtal hafi farið fram. Eins og ég sé þetta er staðan bara þannig að nú er Flokkur fólksins kominn í ríkisstjórn og þetta var aðgöngumiðinn. Þetta var verðmiðinn á því að fara í stjórn. Þessu þurfti Flokkur fólksins að kyngja. Þannig að ef hv. þingmaður er að halda því fram að allir þingmenn og hæstv. ráðherrar flokksins hafi skipt um skoðun (Forseti hringir.) þá óska ég eftir því (Forseti hringir.) að hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar komi í ræðustól (Forseti hringir.) og segi okkur frá því af hverju þeir skiptu um skoðun. Hver er ástæðan?