Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það var jákvætt að fá það fram að almennt væri ekki slæmt að stjórnmálamenn hlustuðu á rök og gætu mögulega skipt um skoðun þó svo að hv. þingmanni fyndist að slíkt ætti ekki að eiga við um Flokk fólksins. Ef við snúum okkur að efni málsins spurði ég formann Miðflokksins um það hvort þetta frumvarp feli í sér að Ísland sé að taka á sig frekari skuldbindingar en koma fram í samningnum. Ekki barst mjög greinilegt svar hvað það varðar og þess vegna þætti mér áhugavert að hv. þingmaður greindi hér í stuttu máli frá því hvaða frekari skuldbindingar Ísland er að taka á sig með því að formgera tryggilega það sem lögin nr. 2/93 báru með sér (Forseti hringir.) í 3. gr. Það væri fróðlegt að Miðflokkurinn svaraði hér með skýrum hætti (Forseti hringir.) hvaða skuldbindingar er verið að innleiða hér frekar með þessu.