156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:14]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir sitt annað andsvar. Staðan er bara þannig: Hann spyr stórrar spurningar; ég hef nokkrar sekúndur til að svara. Grundvallaratriðið er þetta, ég ætla að fá að koma því á framfæri: Við undirritum hér öll drengskaparheit að stjórnarskrá Íslands. Það er tekist á um hvort stjórnarskrá sé brotin með þessari innleiðingu eða ekki. Miðflokkurinn telur stjórnarskrána mölbrotna með svona innleiðingu. Við stöndum alltaf vörð um fullveldi landsins og við stöndum vörð um stjórnarskrána og sú sem hér stendur tekur mjög alvarlega undirritun sína að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, þ.e. drengskaparheitið. Ég mun alltaf verja stjórnarskrána og hún hefur ekkert breyst.(Forseti hringir.) Hún hefur ekkert breyst.