Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Við erum hér að fjalla um mál sem í daglegu tali er talað um sem bókun 35. Þrátt fyrir að það hafi mjög, mjög, mjög mörgum klukkustundum verið varið í umræðu um það, á fyrri stigum sömuleiðis, hér á Alþingi þá er um að ræða mál sem er hvorki sérstaklega spennandi í eðli sínu né mál sem fólk tengir við með beinum hætti. Þegar utanríkisráðuneytið hefur spurt almenning í almennri árlegri könnun þá er þetta ekki eitthvað sem hittir meiri hluta þjóðarinnar í hjartastað og ekki meiri hluti þjóðarinnar sem telur sig hafa kynnt sér málið mjög vel eða skilja það til hlítar. Það er svo sem ekkert óeðlilegt við það og sú sem hér stendur gerir almennt ekki kröfu um að hinn almenni borgari sem borgar okkur fyrir að vera í vinnunni gæti farið í munnlegt próf um bókun 35. Kannski þess vegna virðist vera nokkuð auðvelt að koma fram með stór orð og þrátt fyrir að málið sé ekki spennandi þá er hægt að spila á ákveðna strengi. Þegar því er haldið fram að þetta frumvarp mölbrjóti stjórnarskrána, sem ekki hefur breyst, en nota bene hefur bókun 35 heldur ekkert breyst, ekki eitt einasta orð í henni, þegar sagt er að við séum að framselja fullveldi okkar til Brussel, þegar sagt er að Alþingi hafi ekki þau tæki og tól sem það þarf sem löggjafarvald í sjálfstæðu og fullvalda landi þá er ekkert skrýtið að fólk hugsi: Er þá ekki bara betra að sleppa þessu?
Það sem hér er verið að gera felur það einfaldlega í sér að þegar við erum með almenn íslensk lög sem segja eitt og önnur almenn íslensk lög sem segja örlítið annað, að þegar þau skarast á þá er túlkunarreglan sú að þau lög sem eiga uppruna sinn í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið skuli ganga framar. Það þýðir ekki að stjórnvaldsfyrirmæli eða löggjöf — í hvaða formi sem hún kemur upprunalega inn í EES-samninginn, sem við tökum mjög meðvitaða og upplýsta ákvörðun um að vera hluti af og segjumst öll vilja standa vörð um og standa við — taki sjálfkrafa gildi. Það þýðir aldrei að eitthvað sem Evrópuþingið, Evrópusambandið, hefur ákveðið einhvern veginn sjálfkrafa, án þess að það hafi farið hér í gegn, taki gildi og þess vegna þurfi að túlka einhverjar slíkar reglur framar íslenskum lögum. Þetta á eingöngu við þegar lög sem hafa farið í gegnum þrjár umferðir á Alþingi, í gegnum fastanefndir, verða að lögum og þau lög skarast á við önnur íslensk lög.
Málið er auðvitað búið að vera inni í stjórnkerfinu og svo sem líka inni á Alþingi í allmörg ár. Ég fylgdist með umræðunum í gær og auðvitað á fyrri stigum þegar ég lagði málið sjálf fram á sínum tíma sem utanríkisráðherra en í umræðunum í gær var margt sagt sem — ég ætla svo sem ekki að fara djúpt í það allt saman en það kom nokkrum sinnum fram að þegar hv. þingmenn sem styðja málið segja að þetta sé ekki eins stórt mál og þeir sem tala gegn því láta eins og það sé þá er svarið á móti: Af hverju þurfum við þá að gera þetta? Til hvers þarf þá að standa í þessu? Ég held að það séu mjög margir stjórnmálamenn sem myndu gjarnan vilja bara sleppa því að standa í þessu. Ég held að það séu ekki mjög margir stjórnmálamenn sem finna gígantískan meiri háttar vilja og ástríðu kjósenda sinna til að klára þetta mál eða verja í það miklum tíma. Ég held, án þess að tala fyrir hönd þeirra sem halda því fram að þetta sé ekki eins stórt mál og andstæðingar frumvarpsins vilja vera láta, að þá sé það kannski meint í samhengi við þau stóru orð sem látin eru falla, vegna þess að sumt sem haldið er fram með þetta frumvarp, verð ég að segja, er fulldramatískt þegar því er haldið fram að hér sé um að ræða bara nánast fullkomið valdframsal til Brussel, það sé verið að mölbrjóta stjórnarskrá og hér sé einhvern veginn verið að draga allan kraft eða nánast vígtennur úr löggjafarvaldinu, sem er einfaldlega ekki rétt.
Yfir þennan tíma var auðvitað ákveðin breyta sem — ég veit að margir sem höfðu ákveðna fyrirvara á þessu máli, fannst það óþægilegt og vildu ganga skemur heldur en lengra, breyttu um skoðun eða leið betur með málið þegar okkar æðsti dómstóll í okkar fullvalda og sjálfstæða ríki skar úr um hver staðan raunverulega væri varðandi innleiðingu bókunar 35, þ.e. það er ekkert mjög langt síðan fullskipaður Hæstiréttur komst einfaldlega að þeirri niðurstöðu að bókunin væri ekki réttilega innleidd í íslensk lög sem gerir það að verkum að Hæstiréttur telur sig ekki geta dæmt eftir þeim reglum á grundvelli þeirra réttinda sem borgarar hér eiga að hafa samkvæmt EES-samningnum til jafns við aðra á EES-svæðinu vegna þess að hann lítur svo á að hann hafi ekki heimild til að túlka þær reglur ákveðnum borgurum eða lögaðila í vil vegna þess að bókun 35 sé ekki réttilega innleidd í 3. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið. Þá er oft sagt, og þessu hefur oft verið haldið fram í þessum stól, í útvarpsþáttum og greinum og annars staðar, að ef þetta verður eitthvert vandamál þá geti almennir borgarar einfaldlega leitað réttar síns. Það sé hin eðlilega leið til að bregðast við. Við því vil ég segja: Í fyrsta lagi finnst mér það ótrúlega ósmart nálgun. Mér finnst hún ekki endurspegla virðingu gagnvart hinum almenna borgara. Mér finnst það ekki endurspegla skilning á þeim aðstöðumun að vera ríkisvald og almennur borgari að segja að hinn almenni borgari þurfi bara að leita réttar síns til að fá úr því bætt. Í öðru lagi, og kannski mikilvægara, er Hæstiréttur búinn að segja svo skýrt að jafnvel þegar fólk leitar réttar síns, og við erum þá nota bene að gera kröfu um að allir almennir borgarar hafi skýra yfirsýn yfir það hvort í einhverjum tilfellum sé ríkari réttur á Evrópska efnahagssvæðinu sem þau eiga að njóta heldur en þau raunverulega njóta á Íslandi — það er ótrúlega mikil krafa á hinn almenna borgara að hann eigi að hafa fullkomna yfirsýn yfir það hvort það séu einhver dæmi um að íslensk lög gangi skemur eða veiti almennum borgurum eða lögaðilum ekki þann rétt sem EES-samningurinn kveður á um — en jafnvel þegar borgarinn gerir það og leitar réttar síns og fer í þann kostnað og tíminn líður þá er Hæstiréttur búinn að segja: Við vitum að þessi almenni borgari á þennan rétt samkvæmt EES-samningnum en við lítum svo á að við höfum einfaldlega ekki heimild til að dæma honum í vil, sem við hefðum ef bókun 35 væri réttilega innleidd í íslensk lög. Það er ekki bara ósanngjarnt að gera þessa kröfu á hinn almenna borgara á móti ríkisvaldinu — aðstöðumunurinn augljós — heldur er það líka ógerlegt fyrir þann almenna borgara, jafnvel þegar hann gerir það.
Síðan er sagt að þetta muni gera það að verkum að Alþingi bara geti ekki eða muni ekki — eða það verði alltaf Brussel-valdið eða einstakir stjórnmálamenn hér séu svo hræddir við Brussel, hræddir við embættismenn þar að við munum aldrei setja lög sem stangist einhvern veginn á við EES-samninginn, að það verði alltaf búið að hræða úr okkur líftóruna og sagt að þá séum við að setja EES-samninginn í uppnám þannig að það verði aldrei staða til að gera það. Það hefur svo sem ekki oft verið gert en sú sem hér stendur er yfirlýstur stuðningsmaður samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Hann er að mínu viti mikilvægasti viðskiptasamningur sem við höfum og hann er svo miklu meira en viðskiptasamningur. Hann er svo miklu meira heldurr en það að íslensk fyrirtæki hafi aðgengi að markaði sem telur 450 milljón manns en ekki pínulitlum örmarkaði sem telur 400.000 manns. Hann er svo miklu meira en það vegna þess að hann veitir okkur einfaldlega óteljandi tækifæri til að sækja fram, til að víkka hugann, til að flytja til útlanda, til að stofna þar fyrirtæki, til að fara þar í nám, til að mega búa þar sem þú vilt inni á þessu svæði og þú einfaldlega njótir sama réttar. Það er líka bara spurning um það hvers konar lífskjör og lífsgæði við viljum bjóða borgurum á Íslandi og við bara augljóslega getum boðið þeim svo margfalt betri lífskjör og lífsgæði í gegnum EES-samninginn og þau tækifæri og heimildir sem þar er að finna.
Verandi þessi yfirlýsti stuðningsmaður EES-samningsins hef ég líka lagt fram frumvarp á Alþingi, stjórnarfrumvarp, sem þáverandi ferðamálaráðherra, þar sem við skrifuðum út að við værum með frumvarpinu að ganga gegn skuldbindingum EES-samningsins. Við vorum algerlega meðvituð um það, við færðum rök fyrir því af hverju við vorum að gera það og við sögðum: Við vitum að við erum að ganga gegn skuldbindingum EES-samningsins en við ætlum að gera það samt af því að við höfum þann rétt sem sjálfstætt og fullvalda löggjafarþing á Íslandi. Þú þarft að vera meðvitaður um það að í einhverjum tilfellum geturðu bakað ríkinu bótaskyldu ef þú ætlar að svipta fólk einhverjum réttindum með því að gera það. En við erum búin að segja að við ætlum að standa með og styðja við samninginn. Við erum búin að fallast á að við viljum standa við þær skuldbindingar sem í honum felast. Þar var um að ræða vissulega ívilnandi breytingu á lögum fyrir þau fyrirtæki sem þar voru undir, sem voru ferðaskrifstofur. Þetta gerðum við á tímum heimsfaraldurs þar sem við sáum fram á að ef engar breytingar yrðu á lögunum og ákvarðanir yrðu framkvæmdar í fullu samræmi við lögin þá myndum við mögulega sjá fram á fjöldagjaldþrot ferðaskrifstofa vegna þess að við lítum svo á að sú löggjöf hafi einfaldlega ekki gert ráð fyrir því að það kæmi slík alda eða slíkt högg að allir þyrftu að hætta við sín ferðalög og vegna þess að við sjálf, og önnur lönd líka, settum reglur sem gerðu það að verkum að fólk gat ekki einu sinni komið hingað frjálst ferða sinna, þannig að það eru skýr dæmi um það og meira að segja frá fólki sem tekur EES-samninginn alvarlega og vill standa vörð um hann.
Þessi niðurstaða Hæstaréttar — og síðan eftir þann tíma, frá því að dómurinn um fæðingarorlofið kom, hafa fleiri dómar komið líka. Fyrir mér er það mjög mikilvæg breyta í málinu. Ég ætla ekki að gera lítið úr henni og ég skil vel og mér finnst það virðingarvert gagnvart fólki sem hafði ónotatilfinningu fyrir þessu sem hvílir betur í sjálfu sér og segir: Ja, þegar Hæstiréttur Íslands hefur talað skýrt þá er málið ekki eins óþægilegt fyrir mér og þegar það var dálítið á reiki vegna þess að það tók langan tíma að reyna á það og auðvitað hefur dómaframkvæmd breyst með tíð og tíma. Fólk getur haft hvaða skoðun sem er á því. Fólk getur alveg sagt: Af hverju getur Hæstiréttur ekki bara dæmt eins og hann gerði fyrir áratug eða tveimur? Fólk getur haft skoðun á því en á grundvelli þrískiptingar ríkisvalds hefur Hæstiréttur einfaldlega það vald og Hæstiréttur er bara búinn að kveða upp úr um það að bókun 35 sé ekki réttilega innleidd. Ef hún er ekki réttilega innleidd þá situr bara eftir: Og hvað ætlum við að gera í því? Það er þá annaðhvort hægt að leggja fram frumvarp, það getur verið svona, það getur verið einhvern veginn öðruvísi. Það er líka hægt að segja bara: Já, þetta er leiðinlegt en við ætlum ekki að gera það vegna þess að við viljum ekki ganga lengra. Það er þá ákvörðun um að það bara fari sína leið og verði farið í mál og komi einhver niðurstaða úr því. Ég er ekki að gera það að aðalrökum í málinu að vilja alls ekki fara með málið til útlanda af því að ég er svo handviss um að við töpum því.
Ég veit reyndar ekki alveg með hvaða hætti stjórnvöld myndu taka til skýrra varna þegar svo mikið af gögnum liggur fyrir um mat ofboðslega margra, og þungavigtarfólks, um að þetta sé ekki réttilega innleitt og þegar Hæstiréttur sjálfur hefur sagt það þá væru stjórnvöld að tala gegn skýrri niðurstöðu Hæstaréttar til að halda einhverju öðru fram. En segjum bara að það væri þannig. Það er alveg leið í málinu að gera það. Það er fólk á þeirri skoðun, alls konar fólk og málsmetandi fólk sem segir bara: Ég held að það sé betra að láta þetta bara fara sína leið. Ég er ekki að halda því fram að við eigum alls ekki að gera það af því að ég sé svo hrædd við að við töpum málinu, að ég vilji ekki taka áhættuna á því að niðurstaða þar verði okkur í óhag, sem ég myndi reyndar ekkert endilega segja að væri okkur í óhag vegna þess að mér finnst augljóst að við séum ekki með þetta réttilega innleitt og ég er ekkert sérstaklega hrifin af því að við séum að svipta fólk réttindum sem það á samkvæmt samningi sem við höfum sagst vilja standa vörð um og viljum fylgja, en látum það liggja á milli hluta, að niðurstaðan frá þeim dómstól verði að það verði gerð krafa um að við göngum lengra heldur en þó er gert í þessu frumvarpi, heldur er ég einfaldlega þeirrar skoðunar að ég vil bara hafa þetta í lagi og ég ber bara þá virðingu fyrir Hæstarétti að þegar hann hefur sagt skýrt að þetta sé ekki eins og það á að vera þá vil ég bregðast við því. Ég vil bregðast við því til þess að tryggja að hinn almenni borgari og lögaðilar í þessu landi njóti þeirra réttinda sem þau hafa samkvæmt EES-samningnum. Ég vil líka gera það á grundvelli þeirrar virðingar sem ég ber fyrir löggjafarvaldinu, að við ráðum einfaldlega við það verkefni að finna út úr þessu sjálf. Mér finnst bara enginn bragur á því að skila auðu í því og láta frekar fólk í Brussel finna út úr því fyrir okkur og segja okkur að gera það.
Það er auðvitað alveg auðveldara pólitískt fyrir marga og örugglega m.a. mig, gagnvart kjósendum mínum og mínum flokki væri auðveldara að segja: Heyrðu, bíddu, við ætlum ekki að fara að virða að vettugi skýra niðurstöðu, ef hún yrði þannig, frá Brussel, við erum hérna með EES-samninginn og við ætlum nú ekki að fara að setja hann í hættu, það eru útlendingar búnir að segja okkur að við verðum að gera þetta. Og þá ertu einhvern veginn búinn að færa ábyrgðina svolítið lengra frá þér. Þú ert búinn að segja: Það eru þau sem segja að við verðum að gera þetta og það er svo mikið undir að við ætlum að gera þetta. Við erum með mörg þannig mál sem hafa farið á endanum í gegnum þingið eftir margra ára þref af því að það var ekki pólitískur vilji til þess að bregðast við því. Kannski er það þá bara hluti af umræðunni hér, hvort það er pólitískur vilji til að gera það sjálf eða hvort það er ekki nægur pólitískur vilji til þess að gera það sjálf og frekar pólitískur vilji til þess að fara með það út.
Það hefur verið ágætt að heyra að það eru ekki margir hér á Alþingi sem segja það hátt og skýrt að þau vilji ekki breyta lögunum um Evrópska efnahagssvæðið, þau vilji frekar að það fari bara út og jafnvel þótt okkur væri sagt að breyta lögunum þá munum við samt ekki gera það. Það eru ekki margir sem segja það. Ég hef oft spurt fólk sem talar gegn þessu: En hvað myndirðu gera þegar niðurstaðan sem kæmi að utan væri okkur í óhag? Hvernig myndirðu bregðast við? Myndirðu þá styðja breytinguna? Myndirðu þá greiða atkvæði með frumvarpi sem væri í samræmi við þá niðurstöðu? Ef fólk segir nei þá er gott að vita það vegna þess að þá ertu búinn að staðsetja þig í umræðunni og ert raunverulega þá að klára þessa hugsun og segja það sem þú ert að meina og meina það sem þú ert að segja. En ef fólk segir: Nei, þá myndum við gera það vegna þess að það er okkar skylda, þá segi ég: Ókei, en ég er þá bara á annarri skoðun vegna þess að ég tel meiri brag á því að við gerum þetta einfaldlega sjálf eins og hér er verið að leggja til.
Síðan er sagt að það sé klárt brot á stjórnarskrá að setja þetta inn í lögin. En eins og kemur fram í greinargerðinni með frumvarpinu á bls. 17 þá eru talin upp dæmi í almennum íslenskum lögum sem við höfum hér sett þar sem tekið er fram að alþjóðaskuldbindingar á grundvelli samninga sem við viljum tryggja hafi hér gildi, að ef eitthvað í íslenskum lögum sem sprettur upp frá Íslandi skarast á eða stangast á við það sem þar segir þá skuli fyrrnefndur texti samningsins ganga framar því eða þegar er verið að þýða slíka samninga þá eigi sá texti við umfram íslensku þýðinguna. Það eru alveg dæmi um þennan forgang. Það er stundum vegna þess að það er skýr vilji til að standa við skuldbindingar, stundum er það væntanlega út frá bara einhverri samkeppnishæfni eins og þegar kemur að loftferðamálum, að við gætum ekki tryggt skýra framkvæmd og skilvirka ef við værum með einhverjar reglur sem eru ekki í samræmi við það sem gengur og gerist vegna þess að það gæti haft áhrif á flug o.s.frv. Ég ætla ekki að segja að þetta mál sé rosalega einfalt, að þetta sé augljóst og það séu engar spurningar sem hægt er að hafa en ég er þeirrar skoðunar að það sé rétt að bregðast við, það sé sjálfsagt að bregðast við. Hér er farin leið þar sem við pössum upp á það sem mestu skiptir, (Forseti hringir.) að standa vörð um stjórnarskrá, standa við skuldbindingar sem við höfum veitt og afgreiða þetta svo bragur sé á.