156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hér í fyrra andsvari langar mig til að spyrja hv. þingmann út í afstöðu hennar sem fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra til bréfaskrifta á tímabilinu apríl 2020–30. apríl 2021, sem voru samskipti utanríkisráðuneytisins, þáverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, núverandi hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í því hlutverki. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því ég veit að þingmaðurinn þekkir þessar bréfaskriftir vel, hvað af þeim rökum sem þar voru sett fram til varnar sjónarmiðum Íslands hafa úrelst frá því að þau bréf voru skrifuð — með sérstakri áherslu á bréfið 30. apríl 2021 sem telur 24 bls. með mjög kjarnyrtum og vel fram settum rökum sem verja stöðu Íslands og teikna upp þá mynd að núverandi innleiðing bókunar 35 sé fullnægjandi.