156. löggjafarþing — 56. fundur, 7. júní 2025.
Evrópska efnahagssvæðið.
85. mál
Frú forseti. Ég þakka svarið. Seinni spurning mín hverfist um það hvernig þetta mál er hér lagt fram og ein meginrökin eru þau að dómsmál sé yfirvofandi verði ekki gengið til þess að innleiða bókun 35 með öðrum hætti en verið hefur. Hvert er mat hv. þingmanns á því að líkur séu til þess að ef niðurstaða dómsmáls færi á versta veg, t.a.m. út frá sjónarmiðum okkar í Miðflokknum, þá gengi hún lengra en frumvarpið leggur til að farið verði?